LÍF
Í SJÓ OG FJÖRU
Selir
Selir
heimsóttu eyna í fyrsta sinn skömmu eftir að
hún kom úr hafi og notuðu hana sem hvíldarstað.
Stöðugar breytingar á strandlengjunni hafa þó
hindrað það, að selir kæptu þar reglulega
fyrr en um 1983.
Fjöldi landsela nýtir
eyjuna sem hvíldarstað um vetur, enda er stutt á fengsæl
"fiskimið" frá Surtsey. Margir landseslkópar
virðast þó ekki fæðast í Surtsey,
því við flugtalningar sem fara fram í ágúst
hafa sést einungis fá dýr (0-20). Útselir
hins vegar safnast á norðurtangann á eyjunni hvert
haust og kæpa. Haustið 2003 sáust þar mest 37
hvítir kópar og talsverður fjöldi fulloðinna
dýra hjá þeim. Hámark kæpingar útsels
í Surtsey virðist vera í fyrri hluta októbermánaðar.
(höf. Erlingur
Hauksson - erlingurhauks@simnet.is)
- síðast
uppfært
01-May-2007