LÍF
Í SJÓ OG FJÖRU
Fjaran
Á klettum á austur-
suður- og vestur- strönd eyjarinnar hafa ýmsir einærir
þörungar síðan numið land. Í fyrstu
voru þetta einungis örfáar tegundir með litla
þekju, en nú finnast í fjörunni allnokkrar
tegundir með heildarþekju 64%. Algengustu tegundirnar eru
kísilþörungar og grænslý sem sameiginlega
eru 80% gróðurþekjunnar í fjörunni.
Í
upphafi var ekki um greinileg samfélög þörunga
að ræða, en nú má þar sjá tvö
samfélög þörunga. Ofar liggur grænt belti,
þar sem einkum eru grænþörungarnir grænslý,
slafak og glithæra, og neðar brúnt belti af sambýlis-kísilþörungum,
og brúnþörungum, m.a. ægissigð, marinkjarna
og rauðþörungunum purpurahimnu og hafdúni. Fjörudýr
eru lítt áberandi. Einna helst er þar fjörukarl,
sem nemur land neðarlega í fjörunni á hverju
vori en hverfur á veturna.
(höf. Erlingur
Hauksson - erlingurhauks@simnet.is)
- síðast
uppfært
01-May-2007