JARÐFRÆÐI
Útfellingar
Í Surtsey
myndaðist mikið af marglitum útfellingum við hraungígana,
bæði meðan á gosum stóð og eins fyrstu
árin á eftir.
Þessar
útfellingar voru rannsakaðar á sínum tíma
en eru nú flestar horfnar af völdum veðrunar. Í
eynni er fjöldi hella, einkum hraunrásarhella, en þeir
eru lítt kannaðir. Í sumum hellanna má enn
finna mikið af útfellingum steinda, sem hafa myndast úr
heitum lofttegundum á bilinu 30°-300°C. Steinsalt, thenardít,
gifs, kalsít og ópall eru þar algengar tegundir.
Alls hafa fundist 18 tegundir útfellinga á hrauni og í
hraunhellum í Surtsey. Sumar þeirra eru afar sjaldgæfar
og hafa ekki fundist annars staðar á landinu. Tvær
steindanna eru líklega nýjar heimssteindir.
(höf. Sveinn
P. Jakobsson - sjak@ni.is)
- síðast
uppfært
1-may-07