ALMENNT
Um Surtseyjarfélagið
Þegar sýnt
þótti, að Surtsey myndi verða varanleg eyja, komu
áhugamenn um rannsóknir sér saman um að stofna
nefnd og seinna félag, sem stuðlaði að skipulagi
og eflingu rannsókna þar.
Í lögum
félagsins stendur, að tilgangur þess skuli vera: Að
efla rannsóknir í jarðvísindum og líffræði
í sambandi við Surtsey og á Íslandi almennt.
Félagið sjálft sér ekki um rannsóknarstörf.
Surtseyjarfélagið
hefur gefið út skýrslur
með niðurstöðum vísindastarfa, sem þar
hafa farið fram. Það hefur tvívegis staðið
fyrir byggingu rannsóknarhúss í eynni og einnig
hefur félagið ráðist í að láta
gera þyrlupall á Surtsey. Surtseyjarfélagið
hefur fengið fjárframlög til rekstursins frá
ýmsum aðilum og í mörg undanfarin ár verið
styrkt af íslenska ríkinu.
Úrvinnsla
á rannsóknargögnum hefur farið fram á
ýmsum stofnunum, einkum Hafrannsóknastofnun, Náttúrufræðistofnun
Íslands, Orkustofnun, Rannsóknastofnun landbúnaðarins
og Raunvísindastofnun Háskólans, auk margra erlendra
stofnana. Landmælingar Íslands tóku í upphafi
allar loftmyndir af Surtsey, en hin síðari ár hafa
Loftmyndir ehf. séð um þessar myndatökur.
Surtseyjarfélagið
hefur haft aðsetur sitt hjá Náttúrufræðistofnun
Íslands og er félagið stofnuninni þakklátt
fyrir þá greiðasemi sem hún hefur sýnt
félaginu.
Formaður stjórnar Surtseyjarfélagsins
er Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar
Íslands. Aðrir í stjórn eru Borgþór
Magnússon (varaformaður), Karl Gunnarsson (ritari), Vignir
Thoroddsen (gjaldkeri), Hallgrímur D. Indriðason (umsjónarmaður
vefsíðu), Eyþór Einarsson, Páll Einarsson,
Bjarni Diðrik Sigurðsson, Sigvaldi Árnason og Starri
Heiðmarsson.
- síðast
uppfært
13-apr-10